Samfélag fáráðlinga

Punktar

Hinn vestræni heimur er reiðubúinn að endurtaka mistökin í von um, að þá komi önnur útkoma en í fyrra skiptið. Alls staðar eru sömu eða sams konar pólitíkusar og bankabófar að verki. Bankar eru endurreistir í fyrri mynd. Aftur er reynt að efla hagvöxt, öðru nafni sukk, með því að blása í blöðru. Hér hegða kjósendur sér eins og áður, eru reiðubúnir að kjósa fjórflokkinn í sömu hlutföllum og áður. Komið er til sögunnar hugtak Íslands-heilkennis. Það felur í sér, að kjósendur kalla nú einmitt til valda þá, sem sannanlega komu þjóðinni lóðbeint á hausinn. Slíkt má kalla samfélag fáráðlinga.