Sjálfseyðing gullfiska

Punktar

Fréttablaðið upplýsir, að kjósendur treysti þeim bezt fyrir menntamálum, sem settu þjóðina á hausinn fyrir þremur árum. Þetta hljóta að vera vangefnir kjósendur. Upplýsir líka, að kjósendur treysti þeim bezt fyrir lagasetningu, sem settu þjóðina á hausinn fyrir þremur árum. Hljóta að vera vangefnir kjósendur. Upplýsir, að kjósendur treysti þeim bezt fyrir heilbrigðismálum, sem settu þjóðina á hausinn fyrir þremur árum. Hljóta að vera vangefnir kjósendur. Þeir treysta Sjálfstæðisflokknum betur en öðrum fyrir flestum málum þjóðarinnar. Er þetta gullfiskaminni eða sjálfseyðingarhvöt kjósenda?