Er að velta fyrir mér Guðfríði Lilju Grétarsdóttur. Hún gengur í sama takti og Sjálfstæðisflokkurinn. Vill friða Jón Bjarnason eins og þeir. Vill friða Geir H. Haarde eins og þeir. Tekur einnig Árna Pál Árnason fram yfir Össur Skarphéðinsson eins og þeir. Þetta er aldeilis tilhugalíf í lagi. Reyna má að skýra hvert mál fyrir sig, en sameiginlega eru þau engin tilviljun. Tel þó ekki, að Guðfríður sé á leið í Sjálfstæðisflokkinn. Fremur hefur hún fundið sína fullmótuðu pólitísku hugsjón í biturri andstöðu við Steingrím J. Sigfússon. Sú hugsjón blómstrar á nýjan og óvæntan hátt í viku hverri.