Mitt pólitíska landakort

Punktar

Kýs Samfylkinguna í utanríkismálum (Össur), Vinstri græna í umhverfismálum (Svandís) og Hreyfinguna í mannréttinda- og stjórnarskrármálum (Birgitta). ríkisstjórnina í efnahags og skattamálum, atvinnu- og jafnréttismálum. Kýs engan í bankamálum vegna bankaleyndar, bankagreifa og vaxta. Engan heldur í sjávarútvegsmálum vegna kvótagreifa og engan í landbúnaði vegna styrkjanna. Andvígur Flokknum vegna fjárglæfra og afneitunar, Framsókn vegna fjárglæfra og þjóðrembu. Andvígur Besta flokknum sem samnefnara Fjórflokksins í einu og öllu. Þannig er mitt pólitíska landakort dagsins. Breytist á morgun.