Obama verri en Bush

Punktar

Barack Obama hefur staðfest lög gegn bandarískum mannréttindum, sem George W. Bush hefði aldrei þorað að gera. Obama er orðinn verri forseti en Bush var. Samkvæmt lögunum má ríkið taka menn fasta án dóms og laga, halda þeim ævilangt í fangelsi og stunda pyndingar. Ef einhver rugludallur kerfisins tekur þig fastan á flugvelli í Orlando, getur þú átt á hættu að sjá aldrei aftur dagsins ljós. Þessi lög eru samþykt af þingmönnum beggja flokka, svo að demókratar eru ekki síður ábyrgir en repúblikanar. Ég sagði í upphafi, að Obama væri bara innihaldslaus blaðrari. Komið í ljós, að hann er mun verri.