Dularfull meðmæli

Punktar

Capacent virðist enn vera á fullu í árinu 2007. Mælir með hverjum kónginum á fætur öðrum í ábyrgðarstöður nýs tíma. Þannig mælti Capacent með ofsaklárum Páli Magnússyni í embætti forstjóra Bankasýslunnar. Það endaði auðvitað með ósköpum. Stjórn stofnunarinnar varð að segja af sér. Síðan mælti Capacent með ofsaklárum Þorvaldi Sigurjónssyni í stól forstjóra Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar. Aftur fór auðvitað allt á hvolf og þeirri sögu er enn ekki lokið. Getur ekki einhver aumingjagóður tekið að sér að heimsækja Capacent? Til að skipta um almanakið hjá þessari steingerðu risaeðlu frá hruntímanum.