Skyldugir að stinga göt

Punktar

Gamla biblían New York Times hefur sett mjög ofan síðustu ár í stuðningi við bankabófa. Samt er þar enn sumt bitastætt, svo sem samræður umba blaðsins við lesendur þess. Arthur Brisbane varpaði fram spurningu: Hvort fréttamenn eigi að stinga gat á rangfærslur pólitíkusa. Almenna svarið var: “Is this a joke? This is your job”. Einfaldara getur það ekki verið. Lesendur telja, að fréttamenn eigi að hrekja rangfærslur pólitíkusa, en ekki bara taka á þeim með silkihönzkum. Clay Shirky fjallar í Guardian í dag um þessa skemmtilegu umræðu. Hann telur bandaríska standa sig illa. Hvað um íslenzka?