Margir pólitíkusar eru skelfingu lostnir yfir væntanlegum vitnaleiðslum út af máli Geirs H. Haarde. Þar verða Davíð Oddsson og samráðherrar Geirs H. Haarde látnir svara, hver sagði hverjum hvað og hvenær. Verjendur Geirs hafa sett saman lista yfir annarra flokka pólitíkusa, sem verða kallaðir fyrir til vitnis. Þar er slæðingur af þingmönnum Samfylkingarinnar, sem eru núna með hjartað í buxunum. Sú er ástæðan fyrir tillögu Bjarna Benediktssonar um að fella niður ákæruna. Hann telur, að einhverjir hafi skipt um skoðun frá fyrri atkvæðagreiðslu. Ef þetta tekst, fær þjóðin aldrei að vita, hver sagði hvað við hvern og hvenær. Það er hún, sem tapar mest á tillögu Bjarna Ben.