Verjum leifar réttlætis

Punktar

Guðríður Haraldsdóttir viðlagaritstjóri sætir ofsóknum héraðsdómara. Þarf að greiða lögfræðingum tvær milljónir króna vegna frásagnar þriðja aðila í fjölmiðli, sem hún hefur gripið í að stýra. Það er meira en fólk þarf að borga fyrir að nauðga börnum. Siðlausir héraðsdómarar í Reykjavík eru að venju úti að aka. Útgefandi tímarita Birtings tekur þátt í þögguninni með því að neita að borga. Nýmæli í útgáfu hér á landi. Við búum í samfélagi, þar sem yfirstéttin magnar siðleysi. Hafin er söfnun til stuðnings Guðríði. Söfnunarreikningurinn er 0186-05-00090 og kennitalan er 120858-3199.