Fyrir utan stofugluggann í dag var vinnuflokkur unglinga á Nesinu. Fæstir gerðu handtak, lágu ýmist, sátu eða héngu utan í umferðarskiltum. Þetta eru engin tíðindi, svona er unglingavinnan. Velti fyrir mér, hvernig færi fyrir þessu fólki í lífinu. Minntist umsækjenda um starf blaðamanns. Í þeim hópi voru nokkrir, sem greinilega voru ófærir um að taka upp símtól, hvað þá meira. Töldu mætingu valfrjálsa og afköst valfrjáls. Fyrir utan gluggann í dag unnu tveir. Það voru stúlkurnar. Eins og í hópi umsækjendanna. Undrast ekki, þótt karlar úreldist í þjóðfélaginu, aðeins nothæfir í smáglæpagengi.