Örlög Sparisjóðs Keflavíkur eiga að vera dauðadómur Sjálfstæðisflokksins. Hvergi kemur græðgi aðstandenda flokksins betur fram en í linnulausum stuldi úr sjóðnum. Um þetta er versta hryllingsskýrsla hrunsins, svartari en sjálf sannleiksskýrslan. Með ólíkindum er, að fjármálaeftirlitið hafi ekki séð þetta. Og að bófarnir hafi ekki enn verið dregið fyrir dómara. Svartast af öllu er, að Sjálfstæðisflokkurinn hefur gleymt aðild sinna manna að málinu. Rífur kjaft út í eitt á þingi. Þingmenn Sjálfstæðisflokksins ber að hrekja úr pólitík. Alla sem einn, þetta er siðlaus mafía gráðugustu sérhagsmuna.