Gilzenegger hræsnari

Punktar

Egill Einarsson Gilzenegger er afar þreytandi, enda hræsnari hinn mesti. Nú segir hann blákalt sig telja nauðgun vera alvarlegan glæp. Samt getur hann ekki hunzkast til að manna sig upp í afsaka fortíð sína í blogginu. Þar varð hann alræmdur fyrir að hvetja til nauðgana og hópnauðgana nafnkunnra kvenna. Í blogginu notaði hann ógeðslegt orðbragð kynsveltra smástráka. Ekki hefur hann beðið fyrirgefningar á þessari fortíð. Ætti hann þó að fara skríðandi á fjórum fótum suður til Rómar sér til forláts. Svo birtir hann alls ómerka yfirlýsingu, sem ekki er í neinu samhengi við hans langa og ljóta ritferil.