Dýrt að reka sukkhús

Punktar

Þótt dýrt sé að reisa sukkhús, er enn dýrara að reka þau. Við munum Perluna, sem ætíð var og er enn myllusteinn um háls Orkuveitunnar. Nú er komin til sögu Harpan, sem sló öll fyrri met í sukki, þegar hún var reist. Reikningar fyrir rekstrinum eru að berast. Auðvitað kemur í ljós, að hann er glórulaus. Enda byrjaði hann með frægri skipsferð snobbara á nýársnótt. Síðan hefur verið samfelld veizla, eins og enginn væri morgundagurinn. Hún er á kostnað skattgreiðenda, einkum útsvarsgreiðenda í Reykjavík. Nú vilja sukkstjórar Hörpunnar fá milljarða afslátt af fasteignagjöldum til að fegra reikningana.