Ruglaða eyðslufólkið

Punktar

Yfirdráttur á bankareikningum og krítarkortum vex hratt. Meiripart fjárins notar fólk til að auka neyzlu, ekki til að greiða skuldir. Komið á fullt við að eyða og spenna, samanber utanferðir. Hefur lítið lært af hruninu, heimtar bara, að einhverjir aðrir borgi skuldir þess. Er í nákvæmlega sama rugli og Sjálfstæðisflokkurinn. Sem talar um svokallað hrun og neitar allri ábyrgð á því. Hér séu ekki önnur vandamál en þau, sem núverandi ríkisstjórn hafi búið til. Yfirdráttarfólkið í nýja sukkinu er sennilega stuðningslið Flokksins. Trúir, að senn komi Flokkurinn að völdum og flóðgáttir lána opnist að nýju.