Með nýjasta milljarðinum eru afskriftir Íslandsbanka af skuldum Moggans komnar yfir fimm milljarða. Banki á framfæri ríkis og skattgreiðenda leyfir sér að taka á þennan hátt forustu í mestu sjónhverfingum, sem haldið er að fólki um þessar mundir. Mogginn er staurblint áróðursrit kvótagreifa, sem eru helztu óvinir þjóðarinnar um þessar mundir. Allir, sem taka upp varnir fyrir þjóðina í orrahríð kvótagreifanna, sæta árásum og illmælum Moggans. Þetta er bezta dæmið um, að ekkert breyttist við þriggja ára stjórn annarra flokka. Bófaflokkur sjálfstæðismanna heldur samt fast um stjórnartaumana.