Ólíft fyrir kjósendum

Punktar

Þjóð, sem er fær um að endurvelja sér Ólaf Ragnar Grímsson sem forseta er fyllilega fær um að endurvelja sér Sjálfstæðisflokkinn til stjórnarforustu. Það sýna líka kannanir. Að svo miklu leyti sem kjósendur hafna bófaflokknum, þá styðja þeir aðra anga fjórflokksins. Ný framboð hafa ekki kveikt í hjarta kjósenda. Í baráttu forsetaefna kom berlega í ljós, að hér á landi er ólíft fyrir kjósendum. Þeir hindra vitræn stjórnmál, hlaupa eftir lýðskrumurum og sölumönnum snákaolíu. Þingmenn þurfa ekki að láta staðreyndir trufla sig, heldur láta bara vaða á súðum. Vanþroska þjóð sér fótum sínum ekki forráð.