Gullfoss plús, Geysir mínus

Punktar

Stígakerfið við Gullfoss er orðið til fyrirmyndar, stendur undir tugþúsundum gesta um helgar að sumarlagi. Stígatimbrið verður þó oft hált að vetrarlagi og veldur þá slysum. Vara þarf skýrar við þeim. Bílaplönin hafa einnig verið stækkuð verulega. Kaffistofan getur þjónustað hundruð matargesta og þúsundir annarra viðskiptavina á degi hverjum. Þetta eru miklar framfarir, mun meiri en við Geysi, þar sem stígakerfið er hálfkarað og illa við haldið. Á báðum stöðum ætti þó rekstur veitinga og annarrar þjónustu einn og sér að geta staðið undir endurbótum á svæðinu. Svo mikil er umferð erlendra gesta orðin.