Grátt leikið Mývatn

Punktar

Kísiliðjan lék Mývatn grátt, spillti botni, rýrði silungastofn, áður en hún rúllaði beint á hausinn. Landbúnaður hefur líka tekið sinn toll með notkun sinni á hættulegum gerviáburði og skordýraeitri. Ferðaþjónustan hefur tekið þátt í þessari atlögu að einu merkasta fyrirbæri landsins. Mývatn var til skamms tíma frjó uppspretta silungs og heimkynni fleiri andategunda en aðrir staðir heimsins státa af. Tímabært er fyrir Mývetninga að venda sínu kvæði í kross og friða vatnið. Hefja ber vistvænan ferðabúskap í stað hömlulítillar rányrkju. Sennilega má bjarga Mývatni sem sérhæfðum og dýrum ferðamannastað.