Refsing þurrkuð út

Punktar

Afgreiðsla kerfisins á refsingu fyrstu útrásarbófanna segir okkur, hvernig refsing allra hinna verði. Fangavist verður breytt í samfélagsþjónustu, sem verður bara sjötti hluti dómsúrskurðarins. Daníel Þórðarson og Stefnir Agnarsson fengu sex mánaða fangelsi fyrir umboðssvik. Fangelsismálastofnun breytti dóminum í eins mánaðar samfélagsþjónustu, sem þeir geta inn af hendi utan vinnutíma. Refsingin er þannig nánast þurrkuð út. Þannig virkar kerfið eins og skjaldborg. Ekki skjaldborgin fræga og torfundna um almenning. Þetta verður skjaldborgin um gæludýr kerfisins, um útrásarbófana. Um yfirstéttina.