Fimm verðmætir bófar

Punktar

Fimm menn eru bönkunum meira virði en samanlagður almenningur. Arionbankinn felldi niður 88 milljarða skuld Kjalar í eigu Ólafs Ólafssonar skipakóngs. Landsbankinn felldi niður 50 milljarða skuld Magnúsar Kristinssonar útgerðarmanns. Arionbankinn felldi niður 30 milljarða skuld 1998 ehf. í eigu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar. Landsbankinn felldi niður 20 milljarða skuld Brims í eigu Guðmundar Kristjánssonar útgerðarmanns. Síðan kemur N1 upp á 17 milljarða. Alls eru þetta 205 milljarðar. Það er hærri upphæð er samanlagðar afskriftir almennings, er nema 200 milljörðum. Það er skjaldborg um auðbófa.