Verri endinn ofprísaður

Punktar

Mér sýnist tveggja manna herbergi úti á landi með baði kosta yfir 20.000 krónur fyrir tvo og án baðs 10.000-20.000 krónur fyrir tvo. Morgunverður og rúmföt eru þá í verðinu. Hvort tveggja er sanngjarnt. Í samanburði við það er of dýrt að rukka 8.000 krónur fyrir tvo í svefnsal eða skála, þar sem hvorki eru morgunverður né rúmföt innifalin. Sumir fjallaskálar með opnum svefnsal, útikamar og lélegri sturtu eru komnir með 8.000 króna verð fyrir tvo, Eins og í ýmsu öðru er það lakari endi gistingar, sem er prísaður út af kortinu. Skálar okra í því skjóli, að fárra annarra kosta völ er á svæðinu.