Ögmundur Jónasson er grófasti þjóðrembingur samtímans. Sagði Evrópu vilja stela frelsi okkar fyrir “glerperlur og spritt”. Sérstaklega væru Þjóðverjar vondir, þeir vildu fá hér aukið “lífsrými” eins og Hitler í Austur-Evrópu. Nú bætir hann við, að Evrópa sé “eldhaf”. Hann ýkir ekki bara eða færir í stílinn eins og margir. Hann er lengt út af sólkerfinu í rugli. Örugglega heldur hann, að þjóðin sé svona rugluð, annars léti hann ekki svona. Evrópa er ekki að reyna að hirða af okkur frelsið. Þvert á móti þykir henni frekar vænt um okkur, einkum vegna Nonna og Manna, sem þýzk börn hafa lengi elskað.