Rökleysa ráðherrans

Punktar

Í sjónvarpsfréttum gærkvöldsins sagðist Ögmundur hafa rök fyrir geðþótta sínum í mannaráðningum. Sagði ekki, hver þau rök væru, sagðist bara hafa þau. Í stíl við önnur ummæli hans síðustu misserin. Yfirleitt skil ég ekki, hvað hann er að meina. Sé bara, að hnyklar brýr, dýpkar róminn um áttund og setur upp höfuðverkjasvip. Ég hef á tilfinningunni, að hann sé skólastjóri fávita. Rök hans eru þau ein, að hann færi rök fyrir gerðum sínum. Um þau rök fréttum við ekkert nánar. Nema það séu rök að segja sig hafa rök. Þetta er kauðinn, sem varar við “glerperlum”, “spritti”, “lífsrými” og “eldhafi”.