Nærri milljón á mann

Punktar

Tap Seðlabankans vegna hegðunar Davíðs Oddssonar nam 267,2 milljörðum króna. Samsvarar fjórðungi árlegrar landsframleiðslu. Stærsta tjón bankahrunsins stafaði einkum af fjáraustri Davíðs til gjaldþrota banka án haldbærra veða. Var eini seðlabankastjóri heimsins, sem gleymdi að tryggja hagsmuni bankans, er hann grýtti fé í allar áttir. Kostnaður hvers borgara af sukki Davíðs nam 800.000 krónum, sem nú er tapað fé. Menn verða smám saman að borga það næstu ár í formi hærri skatta og lakari velferðar. Vonlegt er, að Davíð sé orðinn ofurhetja Sjálfstæðisflokksins, hins fjölmenna flokks íslenzkra rugludalla.