Óbein sambúð við bófa

Punktar

Ragnar Árnason prófessor hefur hagsmuni af góðu sambandi við kvótagreifana. Landssamband íslenzkra útvegsmanna fjármagnar að hluta stofnun við Háskóla Íslands, sem Ragnar fær peninga úr. Hann fær ekki peningana beint frá bófum, heldur óbeint. Þess vegna var Þór Saari dæmdur fyrir meiðyrði. Dómurinn var að ýmsu leyti undarlegur að venju og mun ekki standast samevrópska dómstóla. Þar tapar íslenzka ríkið öllum meiðyrðadómum dómstóla. Með samskotum þurfum við að koma upp stofnun, er fjármagnar áfrýjanir slíkra úrskurða til Evrópu. Tregir dómarar reyna að hindra sjálfsögð meiðyrði og eðlilegar móðganir.