Með og móti svínaríi

Punktar

Fylkingar hafa myndast um ósóma íslenzkra embættismanna í kjölfar framferðis ríkisendurskoðanda og fjársýslustjóra. Davíð Oddsson og Morgunblaðið eru hörðust í vörninni, enda ber Davíð mesta ábyrgð á andverðleika-þjóðfélaginu. Málgögn Sjálfstæðisflokksins á netinu eru saman í þessum hópi og fjölmargir þingmenn hlýða Davíð að venju. Sama er að segja um marga þingmenn Framsóknar með Vigdísi Hauksdóttur í broddi fylkingar. Hefur bara áhyggjur af “þýfi” Kastljóss, engar af málsefninu. Umræðan um bókhaldshugbúnað ríkisins speglar grundvallar-afstöðu til heimsku og spillingar, andverðleika og svínarís.