Björgvin Sigurðsson var bankaráðherra hrunstjórnarinnar. Hefði aldrei átt að vera endurkjörinn þingmaður. Og á alls ekki að fara á lista að þessu sinni, Samfylkingunni ber skylda til að sjá til þess. Ekki er nóg afsökun að hafa ekki tekið eftir neinu og ekki fengið að mæta á fundi í sínum málaflokki. Sama er að segja um fyrsta bankaráðherra þessarar ríkisstjórnar, Árna Pál Árnason. Var eindreginn bankavinur og hindraði siðvæðingu bankanna. Því voru bankarnir endurreistir í sinni fyrri spilltu mynd. Báðir hafa gefið í skyn, að þeir sækist eftir endurkjöri í vor. Samfylkingin verður að stöðva þá.