Vanstillt fésbók

Punktar

Á fésbókinni vantar allar stillingar til að gera hana þægilega. Þar er ekki hnappur til að loka fyrir beiðnir um þáttöku í netleikjum. Væri hentugt þeim, sem þýðast ekki slíkt. Ekki heldur er þar hnappur til að loka fyrir statusa með myndum. Margir hafa fattað, að gagnlegir statusar eru allir án mynda. Statusar með mynd flytja helzt tónlist, spakmæli á ensku eða myndir af höfundi, sem gott væri að losna við, ef þú þýðist ekki slíkt efni. Þótt fésbókin sé vinsæl og nýtist vel, verður hún þunglamaleg, þegar vinum fjölgar um of. Einfalt væri að leysa það með nokkrum grisjunar-hnöppum.