Vélbyssuskothríð

Punktar

Hanna Birna Kristjánsdóttir sækist eftir efsta sæti á lista Flokksins í öðru Reykjavíkurkjördæminu. Líkleg til að ná því, enda er hún frambærileg bót á aumri stöðu. Aðalmenn þingflokksins eru hrunverjar, vafningar, sjóðastjórar, kúlulánafólk, skattsvikarar og varningsþjófar úr hruninu og frá því fyrir hrun. Hins vegar talar hún eins og vélbyssa. Ég skil ekki, hvað hún er að segja. Mér er sagt, að með því að spila hana á hálfum hraða náist samhengi og það sé bara harla gott. Hún hefur góðan tíma til að vinna úr þessum vanda sínum. Verður þá skeinuhætt siðblindingjunum, sem fyrir sitja á fleti.