Evran blífur

Punktar

Evran er mikilvægur þáttur friðarins, er hefur leyst Evrópustríðin af hólmi. Hentar varla spilltum ríkjum, svo sem Grikklandi og Íslandi. Grikkland gerði hana óvinsæla, jafnvel í Þýzkalandi. Samt er evran komin til að vera, sem sést af traustu gengi hennar í ólgusjó síðustu missera. Í henni felast engin mistök, en útfærslan var ótraust. Ríki evrunnar þurfa ábyrgari ríkisfjármál og ríkissjóðir eiga ekki að ábyrgjast banka. Evrópa lærir nú af reynslunni, verður sterkari en nokkru sinni fyrr. Evrukrísan verður álfunni til góðs, þegar til lengri tíma er litið. Og krónur eru auðvitað marklaus gjaldmiðill.