Kliður af einræðum

Punktar

Skil ekki, hvers vegna Egill nennir að draga pólitíkusa og verðandi slíka í Silfrið. Óbærilegt er að hlusta á dónalega frekjudalla gjamma látlaust hver upp í annan. Gaman var að þessu einu sinni eða tvisvar, en þetta hættir að vera grín við linnulausar endurtekningar. Hins vegar mætti taka vinnubrögðin upp á Alþingi til að spara tíma. Láta alla alþingismenn tala samtímis, þeir hlusta hvort sem er aldrei á það, sem hinir segja. En í upplýsingaþætti er ekki við hæfi að birta klið af einræðum. Veldur bara þjáningu þeirra, sem telja sig neyðast til að fylgjast með sjónarmiðum atvinnumanna um pólitík.