Formanni græðist fé

Punktar

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson græðir 125 þúsund krónur á mánuði, flytji hann lögheimili sitt norður. Telur sig sýna væntanlegum kjósendum nyrðra samstöðu á þennan hátt. Of siðblindur til að skilja, að hann er að misnota fríðindi alþingismanna utan af landi. Þetta er launauppbót, sem þeir fá fyrir að skrá bókhaldið frjálslega. Auðvitað verður honum núið þessu um nasir, eins og hann á skilið. Oftar hefur Sigmundi orðið fótaskortur á ferðalagi sínu með flokkinn, sem hann keypti fyrir Kögunarfé. Gamall spillingarflokkur varð í höndum hans að hamslausum skrílflokki, sem ætíð er uppi á háa C-i á Alþingi.