Börn umboðssvikara

Punktar

Hvernig líður börnum illa vegna fjölmiðla? Líður þeim ekki bara illa, því að faðirinn framdi óhæfuverk? Er það ekki hann, sem ber ábyrgð á vanlíðan barna sinna? Af hverju skyldi hann fá bætur af fjölmiðli fyrir að hafa raskað ró barna sinna? Jón Þorsteinn Jónsson átti að hugsa sinn gang hjá Byr, áður en hann setti í gang gjaldeyrisbrask vegna Exeter. Endaði með honum í fangelsi fyrir umboðssvik. Er ekki nær að halda, að sá atburður hafi valdið angist barnanna, fremur en eðlilegar fréttir í lýðræðisríki? Útrásarbófar kæra nú fjölmiðla út og suður fyrir að segja frá brölti þeirra gegn samfélaginu.