Ný gleði daglega

Punktar

Alltaf gaman að lesa blogg og fésbók. Björn Bjarnason er þaggari frá gamalli tíð; kvartar yfir, að Ríkisútvarpið skuli segja frá útifundi til stuðnings nýrri stjórnarskrá. Stöð 2 falsar niðurstöður könnunar til að hækka tölur um fylgi Sjálfstæðisflokksins. Vilhjálmi Bjarnasyni skákað niður um sæti til að hindra þingmennsku hans fyrir Flokkinn; ætli Jón Þorláksson yrði ekki píptur niður þar á bæ léti hann á sér kræla. Stjórnarliðið hyggst biðja andstöðuna um að segja sér, hvaða breytingar megi gera á stjórnarskránni. Sykurbergur rukkar starfsmenn Fésbókar um 12.000 krónur fyrir að fá að senda honum póst.