Yfirlit um flokkana

Punktar

Flokkurinn og Framsókn eru pólitískir armar bófaflokka, er hafa haldið okkur í gíslingu um áratugi. Stuðningur við þá lýsir yfir eigin heimsku. Einnig er Samfylkingin afleit, hrunflokkur verksmiðjukrata. Hvorki áhugi á landvernd né upplýsingafrelsi og hvað þá á nýrri stjórnarskrá, samanber frí Alþingis eftir áramótin. Slappir Vinstri grænir hafa hvorki áhuga á upplýsingafrelsi né stjórnarskrá. Smávon er í öllum nýju flokkunum. Ég bíð eftir yfirlýsingum þeirra um nýja stjórnarskrá og upplýsingafrelsi. Og um stöðvum eyðileggingar Eldvarpa sem fyrsta áfanga í herútboði gegn verksmiðjukrötum allra flokka.