0617
Rannsóknir
Dómstólar
1. Mest lögfræði er stunduð utan dómstóla, reynt er að ná sáttum.
2. Blaðamenn verða að skilja leikreglur dómstóla, hugtökin.
3. Dómsmál er eigin heimur, sem takmarkast við eigin staðreyndir.
4. Muna, að lögmenn eiga að koma fram sem andstæðingar.
Hvað eru dómarar að gera? Eru þeir með þinghald? Eru þeir í þinghúsinu? Dómarar sæta sjaldan ákúrum stofnana sinna. Þagnarlögmálið er algilt í dómhúsum. Dómarar tala ekki illa hver um annan og lögmenn þora ekki að reita þá til reiði.
Dómarar:
Hvernig er málum úthlutað til dómara? Er það eftir talnakerfi? Mæta sumir dómarar illa, koma seint og vinna stuttan vinnudag? Hvernig fer með dóma þeirra fyrir Hæstarétti, er þeim breytt óvenjulega mikið þar?
Með því að tala við lögmenn, prófessora, skrifstofumenn og meðdómara getur blaðamaður metið, hvort dómari sé talinn hliðhollur sækjendum eða verjendum og hver séu önnur sérkenni hans í starfi. Blaðamaður þarf að læra að hanga í dómhúsi.
Er eitthvað vitað um fjármál og fjárhag dómara? Neitar hann að víkja sæti? Er dómari einangraður í frítímanum eða er hann úti á lífinu? Er hegðun dómarans að einhverju leyti óvenjuleg og getur það haft áhrif á starf hans? Tíu verstu dómarar svæðisins.
Saksóknarar:
Hvað gera þeir og hvað gera þeir ekki? Hver er persóna þeirra, til dæmis pólitísk? Tapar hann hverri málsókninni á fætur annarri? Sætir hann áminningu eða er hann færður í starfi? Hvað höndlar hann mörg mál á ári?
Fer hann yfir eða undir markið í hörku? Safnar hann sakarefnum saman í pakka, sem eru ódýrari fyrir sakborninga? Hvað segja verjendur um hann? Kallar hann í vitni, sem eru treg. Hvaða sérfræðinga notar hann, eru þeir marktækir?
Verjendur:
Er verjandi að safna tekjum, en leggur lítið á sig? Er dómskipaður verjandi lakari en einkarekinn verjandi? Er verjandinn með kenningar, sem eru úti af kortinu samkvæmt heilbrigðri skynsemi? Ber hann við tímabundinni geðveiki?
Dómsmálið:
Hversu lengi stendur dómsmálið? Er réttlæti fullnægt, ef seinagangur er mikill? Hver er meðalgangur mála hjá hverjum dómara? Ónýtast mál vegna seinagangs? Eru langir biðlistar dómsmála? Eru sjónhverfingar í málflutningi?
Gömul dómsmál:
Hafa sakborningar fengið slæma meðferð fyrir dómi. Hefur síðar komið í ljós, að einhver var saklaus? Hvernig fór málið svona, hverjum var um að kenna? Var í gangi samsæri rannsóknaraðila gegn sakborningi?
Fórnarlömb:
Eru fórnarlömb ekki samvinnuþýð? Óttast þau sakborninginn? Hvað er gert til að milda óttann? Verða þau aftur fórnarlömb við meðferð málsins, til dæmis fórnarlömb kynferðisglæpa. Fá þau ekki að vita um lausn úr fangelsi?
Fá fórnarlömb bætur, sem þeim eru dæmdar? Borgar ríkið þær, ef hinn sakfelldi gerir það ekki eða getur það ekki? Er meiri kostnaður vegna ofbeldismanna en fórnardýra þeirra?
Dómar:
Er líklegt, að sakborningur fremji fleiri glæpi? Lagast hann í fangelsinu? Er þar einhverja menntun að fá? Eru sektir óhæfilega háar eða lágar? Virkar dómur til samfélagslegrar þjónustu? Eru meðferðir notaðar til að milda fangelsi?
Hvernig er dómvenja þessa dómara í samanburði við dómvenju annarra. Dæmir einn í sektir, en annar til fangavistar? Eru einhverjir dómarar úti af kortinu? Er eitthvað gert í því? Er farið eftir lágmörkum og hámörkum í lögum?
Áfrýjanir:
Dómum hvaða dómara er mest áfrýjað? Fær hinn sakfelldi sér nýjan lögmann? Hefur verjandi gerst sekur um trassaskap, mætti hann til dæmis ekki?
Athugið Barnahús hér á landi.
Hvernig er fjármálum dómstóla háttað? Er nægt eftirlit með þeim? Fer kostnaður við mál úr hófi fram? Er tölvuvæðing ásættanleg? Seinkar útgáfu dóma?
Öll dómsmál hafa hala af skjölum, sem blaðamenn geta fengið að sjá. Dómsmál eru skráð undir nöfnum málsaðila ásamt árlegu númeri. Þar er kæra, viðbrögð við kæru, yfirheyrslur og vitnisburðir, tillögur málflutningsmanna, framlögð gögn og dómur.
Aðrar sögur:
Dómskjöl verða oft tilefni frétta á öðrum sviðum. Howard Hughes málaferlin. Með tölvuvæðingu dóma má leita að orðum, sem skipta máli í öðrum fréttum. Hvað kostar slík leit?
Skilorð, reynslulausnir og náðanir:
Hvernig er fylgst með hátterni í skilorði? Er eftirlitsmaður og sinnir hann verki sínu? Hvað hefur hver þeirra marga fyrrverandi fanga til að fylgjast með? Hvaða þjálfun hefur hann?
Hversu mikið er um afbrot á skilorðstíma? Er tekið tillit til þeirra? Eru menn teknir úr umferð? Hvernig starfa þeir, sem ákveða reynslulausn eða náðun? Eru niðurstöður þeirra rökstuddar, hvar?
Hvernig komast fangar inn í lífið aftur? Hafa þeir fjármagn? Bíður vinna eftir þeim? Fara þeir aftur í sama glæpaferlið?
Fangelsi:
Hvernig samfélag er fangelsi? Hvernig er farið með fanga? Hver hefur eftirlit með fangelsisstjóra? Hver var ferill fangavarða, menntun? Hvers konar fólk velst til slíkra starfa? Eru fangaverðir vinir fanga? Hegningarhúsið.
Brant Houston, Len Bruzzese & Steve Weinberg,
The Investigative Reporter’s Handbook
A Guide to Documents, Databases and Technologies
4th Edition
2002