0723
Ritstjórn
Jafnvægi tölublaða
Michael Robert Evans, The Layers of Magazine Editing, 2004
Jeff Csatari, ritstjóri Men’s Health: Ef höfundurinn skilur það, sem þú vilt, og skilar því, þarftu ekki að trufla rödd hans. En sé hún ekki í stíl blaðsins skaltu óhræddur breyta henni. Hugsaðu bara um lesandann, bestu greinina fyrir hann.
Eftir fyrstu yfirferð kemur röðin að þessu:
1. Passar greinin?
2. Er tónninn við hæfi?
Þú kannt að hafa tugi spurninga fyrir höfundinn í minnisbók, en krotar þær ekki í handritið.
1. Passar greinin stefnu blaðsins?
2. Passar greinin lesendunum?
3. Passar greinin fyrirmælum ritstjóra?
4. Passar greinin við aðrar greinar í sama blaði?
5. Passar greinin í röð áður birtra greina?
Fyrirmæli geta verið um:
1. Lengd.
2. Heimildir.
3. Uppbygging.
4. Tónn.
Ritstjórinn á að verða var við frávikin og skilja þau.
John McDonald, ritstjóri Woodwork: “Hvert tölublað þarf að vera í jafnvægi, fjallað er um verkefni og um fólk. Jafnvægið er matsatriði, en þú átt að hafa tilfinningu fyrir því. Jafnvægi næst ekki í tímahraki, þarfnast umhugsunar.”
Tímarit um íslenzka hestinn þarf jafnvægi milli keppni, áhorfenda, ræktenda, braskara, útreiðafólks, langferðafólks, hryssueigenda, áhugafólks um einstaka liti, um einstakar gangtegundir. Í mörgum tilvikum les fólk bara sinn eina efnisþátt. Og kvartar yfir hinu.
Patrick J. McGeehan, rannsóknastjóri National Geographic: “Við fjöllum um lönd og svæði í fréttunum, en reynum líka að vera tímalausir, svo að nota megi safnið af tölublöðum blaðsins sem eins konar alfræðiorðabók um lönd og svæði.”
George C. Larson, ritstjóri Air & Space: “Við reynum að hafa jafnvægi milli loftferða og geimferða, milli fortíðar og framtíðar, milli tækni og fólks og milli ýmissa annarra flokka. Við viljum kenna eitthvað í hverju tölublaði.”
Lausn á jafnvægi í tölublaði felst oft í að færa stakar greinar milli tölublaða. Þú þarft alltaf að geta útskýrt, hvers vegna þetta efni er í blaðinu eða hvers vegna það er ekki þar, og getað vísað til ritstjórnarstefnunnar í því samhengi.
Tónn greinar er rödd hennar, persónuleiki hennar, sjónarhóll, tilfinning hennar. Hann felst í: Nafnorðum. Sagnorðum. Gerð málsgreina. Gerð málsliða. Ýkjum og úrdrætti. Spakmælum og samlíkingum. Háði.
Tónn er innifalinn í vef greinar. Það er ekki hægt að sletta honum ofan á. Best er að höfundurinn komi sér í rétt hugarástand, þegar hann sest við skriftir. Þá er líklegt, að fram komi tónn við hæfi.
Forskrift ritstjórans þarf að fela í sér tóninn, sem óskað er eftir. Annars getur illa farið. Það er mjög erfitt að breyta tóni í þegar komnu handriti. Höfundurinn getur ekki hent inn orði hér og þar. Hann verður að skrifa greinina upp.
Mat á tóni:
1. Fyllir hann þarfir lesenda?
2. Fylgir hann smekk lesenda?
3. Hæfir hann málefninu?
4. Samræmist hann öðru efni?
5. Samræmist hann efni fyrri blaða?
Enn er ekki komið að því að krota neitt í handritið. Þú hefur spurt ýmissa spurninga, ekki endurskrifað handritið. Þú ert viss um, að það sé vit í því, það hæfi forskriftinni, lesendum og tímaritinu. Þú ert viss um, að tónninn sé réttur.
Með góðri hugsun á réttum tíma hefurðu nú fengið grein, sem hentar. Þú hefur ónáðað höfundinn, sem sættir sig við það, af því að hann veit, að greinin batnar. Jafnvel Pulitzer-verðlaunahafar vilja endurskriftir á greinum sínum.
Góðir höfundar vilja, að það, sem birtist undir nafni þeirra, sé það besta fáanlega í stöðunni. Þeir vilja ekki lata eða feimna ritstjóra, sem láta allt fram hjá sér fara. Ritstjórinn hefur heldur ekki fyrirskipað, heldur bent á.
Spurningar ritstjórans ögra höfundinum til að gera sitt besta. Þegar öllu þessu er lokið og endurskrifuð grein er komin inn, þá kann svo að fara, að endurskrifa þurfi greinina aftur og enn aftur, þangað til hún er orðin hrein.
Nú kemur að skoðun stoðkerfis greinarinnar. Þú skoðar beinagrindina og fullvissar þig um, að allt hangi rétt saman. Þú lítur á megingerðina, upphafið, endann, án þess að krota neitt í handritið. Af þessu er megingerðin erfiðust viðureignar.
Michael Bawaya, ritstjóri American Archaeology: Vel skipulögð grein flæðir eðlilega milli atriða og fer yfir öll atriði. Ég legg áherslu á flæðið milli atriða, margir höfundar eiga erfitt með það. Áhersluatriði mega ekki týnast.
Hvaða hluta stefnunnar hæfir greinin? Geturðu nefnt hana? Hvernig og hvers vegna hæfir greinin stefnunni? Ef hún missir marks, geturðu neitað henni og hreinsað upp tjónið. En þú kannt að þurfa að greiða “kill fee”, lágmarksgjald.
Verða lesendur glaðir yfir greininni? Hvers vegna? Eru rannsóknir hennar teknar af netinu, þar sem allir aðrir geta líka fundið þær? Er lengdin sú, sem beðið var um? Eru heimildarmenn réttir og tilvitnanir réttar?
Góðir ritstjórar gefa sér tíma til að velta fyrir sér beinagrindinni. Er hún skýr? Örugg með sig? Sterk? Hreyfir hún söguna fram eftir vegi? Vill ég halda áfram að lesa? Er eitthvað pirrandi, eitthvað óviðkomandi? Vantar upplýsingu?
Sjá nánar: Michael Robert Evans, The Layers of Magazine Editing, 2004