Alræðisríkið

Punktar

Obama hefur fengið endurnýjað leyfi dómara til að halda fólki ótímabundið í fangelsi án dóms og hefðbundinna laga. Fær því leyfi til að nota Guantanamo fangabúðirnar áfram. Þar sitja grunaðir menn og unglingar árum saman án þess að vera kærðir og án þess að mál þeirra séu afgreidd. Þetta tíðkaðist hjá geðbiluðum einræðisherrum fyrri tíma í Evrópu, en hefur lengi verið bannað. Meira að segja Pútín gerir þetta ekki í Rússlandi. Enda er búið að hafa endaskipti á vestrænum gildum. Menn leita jafnvel mannréttinda á flugvelli við Moskvu og í Suður-Ameríku, er til skamms tíma var leikvöllur bófaflokka.