Voða vonda Evrópa

Punktar

Evrópusambandið situr víða á svikráðum. Ögmundur upplýsti fyrir löngu, að þar væri samfellt eldhaf og að það vildi eignast hér Lebensraum og kaupa fullveldi vort fyrir glerperlur og spritt. Ráðherrar upplýstu, að það vildi troða eitraðri búvöru ofan í þjóð, sem étur vegasalt og aðra hollustu á borð við díoxín og skordýraeitur, arsen, kvikasilfur og kúk. Aðrir upplýstu, að það mútaði kontóristum með IPA-styrkjum til að styðja aðild að bandalaginu. Yfirgangurinn er slíkur, að það borgar kontórum fyrir að taka upp regluverk að hætti Evrópu. Í stað þjóðlegs geðþótta að hætti Davíðs og bófaflokkanna.