Þrír betri kostir

Punktar

Samanlagðar hagræðingartillögur Ásmundar, Vigdísar og Guðlaugs eiga það sameiginlegt, að betri kostir eru til. Gerum ráð fyrir, að allar tillögurnar verði framkvæmdar. Samanlagður árangur yrði minni en af afnámi styrkja til landbúnaðar. Samanlagður árangur yrði minni en afnámi eftirgjafarinnar á auðlindarentu kvótagreifanna. Samanlagður árangur yrði minni en afnámi eftirgjafarinnar á auðlegðarskatti auðgreifanna. Sameiginlegt einkenni tillagna nefndarinnar er að þær velta ekki við hverjum steini. Heldur velta aðeins við smásteinum, sem gæludýrum valdhafanna þóknast, að velt sé við.