Fátæklingar eru minnisdaufir eins og gullfiskar í búri. Synda hring eftir hring og muna aldrei eftir að hafa verið hér áður. Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn eru bófaflokkar, sem hagnýta sér þetta. Tvöfalda fylgi sitt í kosningum með því að segjast gera allt fyrir aumingja. Síðan kemur í ljós eftir kosningar, að þeir gera þetta ekki, heldur allt fyrir auðmenn. Á fjórum árum gleymist gullfiska-kjósendum þessi staðreynd. Þá eru fátæklingar reiðubúnir að trúa aftur þeim bófum, sem mestu lofa og hraðast. Fatta ekki, að þeir hafa verið þar áður. Það heitir lýðræði, mjög svo ofmetið fyrirbæri.