Þegar hundurinn var sársvangur, tók eigandinn hníf, skar skottið af hundinum og tróð því upp í hann. Rétt lýsing á upprisu miðstéttarinnar. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hyggst skera skottið af miðstéttinni með auknum sköttum. Og stinga því upp í hana sjálfa sem skuldaleiðréttingu á heimsmælikvarða. Á sjónhverfingunni græða aðeins þeir, sem tóku ofurlán fyrir 400 fermetra húsnæði og hafa 800.000 krónur eða meira í mánaðartekjur. Græðgisvinir silfurskeiðunganna ginu yfir of miklu og hafa síðan verið með allt niðrum sig. Loforð Sigmundar Davíðs miðuðust einkum við þennan sjálfhverfa hóp.