Hrósa sér í fjölmiðlum

Punktar

Íslenzkur múslimahatari að nafni Óskar Bjarnason kemur fram í fjölmiðlum og játar aðild að hatursglæp gegn múslimum. Hópur manna kom á lóð fyrir mosku við Miklubraut og fjórir menn dreifðu þar svínshausum. Þetta varðar við lög, en samt þykist lögreglan ekki hafa neitt til að rannsaka. Hlustar greinilega ekki á útvarp Sögu og sér ekki Vísi. Til hvers er löggan? Til að stuðla að spjöllum í Gálgahrauni? Til að njósna um símtöl allra Íslendinga á vegum bandarískrar njósnastofnunar? Dreifing svínshausa á trúarlóð er truflaður verknaður. Æsir aðra fábjána til ýktrar eftirbreytni. Sofandi Stefán vakni.