Jæja þá erum við búin að kíkja í pakkann. Þar reyndist vera útblásin blaðra. Nefndin fjölmenna leit ekki á það sem sitt hlutverk að finna fjármögnun hins mikla heimsmets í loforði Sigmundar Davíðs. Þetta er í stórum dráttum bara IOU án ábyrgðar neins. Bjarni Benediktsson neitaði að láta ríkið taka ábyrgð og það segir sína sögu. Margir sjálfstæðismenn hrista hausinn, þar á meðal alþingismenn, og það segir sína sögu. Hér er bara útblásin blaðra fyrir þá, sem hingað til hafa látið ljúga að sér hverju sem er. Excel-nefndin féllst á að láta hjá líða að fjalla um fjármögnun himnaríkis, heimsmets og upprisu.