Við höfum ókeypis aðgang að veraldarvefnum, því Tim Berners-Lee gaf heiminum HTTP stýrikerfið. Við höfum ókeypis aðgang að tölvum, því að Thorvald Linus gaf heiminum Linux stýrikerfið. Við höfum ókeypis aðgang að mestu alfræðibók heims, því að Ward Cunningham gaf heiminum Wiki forritunina. Höfum ókeypis aðgang að langstærsta gagnabanka heims, því að Larry Page og Sergey Brin gáfu heiminum ókeypis aðgang að Google Search. Það er firra, að græðgin sé benzín framfara. Einkaleyfi eru glæpur. Hinir gráðugu eru bara blóðsugur á framförum. Kvótagreifar eru ekki sjávarútvegur, heldur blóðsugur á auðlind.