Séríslenzk meðvirkni

Punktar

Hæstiréttur hefur úrskurðað, að útrásardómur gegn fyrrum forstöðumanni hjá Glitni skuli mildaður. Langur tími hafi liðið frá broti til dóms. Hingað til hefur fyrning verið miðuð við tímann frá kæru til dóms. Í þessu tilviki var sá tími tæplega þrjú ár, frá janúar 2010. Þá kærði Fjármálaeftirlitið og Sérstakur saksóknari ákærði í maí 2012. Telji Hæstiréttur, að ekki skuli miða við kæru, heldur tíma frá broti, er það athyglisverð breyting frá fyrri venju. Slíkan úrskurð ber að kæra til fjölþjóðlegs dómstóls í Evrópu. Mundi annars hindra, að íslenzk meðvirkni hindri uppgjör þjóðarinnar við útrásina.