Hanna Birna Kristjánsdóttir svaraði engri spurningu, sem lögð var fyrir hana í fyrirspurnatíma á alþingi í gær. Í staðinn hellti hún sér yfir þingmenn af alkunnum dólgshætti. Eftir stendur, að á hennar vegum var dreift lygum í fjölmiðla um hælisleitanda í ónáð. Svonefnt rekstrarfélag ráðuneytisins var svo látið gera leyniskýrslu um, að lekinn væri ekki þaðan. Rekstrarfélagið neitar eins og ráðherrann að svara nokkurri einustu spurningu um vinnulag og verkferli við kattarþvottinn. Í embætti ráðherra situr dólgsleg frekja, sem áður var alræmd af skítabrögðum til að skáka keppinautum sínum í flokknum.