Spunabomban hvissaði í gærmorgun. Á vefnum sögðu málgögnin engar varanlegar undanþágur fást hjá Evrópusambandinu. En eftirfylgnina vantaði. Jámenn tóku fyrr við sér en neimenn. Fyrrum formaður Framsóknar, Jón Sigurðsson, rakti óralanga röð dæma um varanlegar undanþágur ríkja frá Evrópureglum, þar með í landbúnaði og sjávarútvegi. Sumt er nefnilega bannað á pappír, en leyft í raunheimi. Ég skil ekki orðhengla um mun á „undanþágum“ og „sérlausnum“, en skil hinn langa lista Jóns. Neimenn tóku við sér upp úr hádegi í gær, en þá var málið dautt í gömlu skotgröfunum. Spuni virkar bara stundum, ekki núna.