Enginn núverandi ráðherra er hæfur til að gegna embætti. Þeir jaðra við að vera hælismatur. Sumpart vegna heimsku, sumpart vegna fólsku og sumpart vegna siðblindu. Undanfarið hef ég rakið dæmi um þetta allt. Í biðstofu ráðherraefna er ekki um auðugri garð að gresja, samanber Vigdísi og Frosta rugludalla. Kjósendur hafa ekki getað komið sér upp frambærilegum ráðherrum. Í stétt pólitíkusa er ekki til næg hæfni til að reka fullveldi. Í Reykjavík hafa trúðar reynzt betur en atvinnumenn í pólitík. Kjósendur verða að taka sér tak og hætta þessu rugli. Finna einhverja, er geta axlað pólitískt vald.