Stórum flokki stolið

Punktar

Kæru kjósendur Sjálfstæðisflokksins, einu sinni var ég einn af ykkur. Það eruð ekki þið, sem hafið yfirgefið flokkinn, svikið hann. Það er hann, sem hefur yfirgefið ykkur, svikið ykkur. Flokkurinn snerist, fyrst hjá Davíð og Geir, síðan Bjarna. Er ekki lengur flokkur hins frjálsa markaðar. Berst gegn frelsinu í uppboðum á leigu veiðileyfa. Gætir hagsmuna gamla pilsfaldsins, ekki sprotafólks. Hlustar ekki á kaupmenn og iðjuhölda, hvað þá verkafólk. Tók bókstafstrú á kvótagreifa. Ekki lengur í hópi hægra flokka Vesturlanda. Flokkurinn er kominn yfir í Teboðið og utangátta, geðveika, svarta fanatík.